Um mig
Ég heiti Rakel og hef alltaf haft mikla ánægju af því að skapa og vinna með höndunum. Ég er grafískur hönnuður að mennt og sköpun hefur því fylgt mér lengi, bæði í starfi og áhugamálum.
Handavinna hefur sérstakan sess hjá mér og ég hef gaman af ýmiss konar verkefnum, hvort sem það er prjón eða útsaumur, eða eitthvað allt annað sem vekur áhuga minn. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að vinna með falleg efni, liti og smáatriði og sjá hugmynd verða að fullunninni vöru.
Rakel.is varð til sem staður fyrir það sem ég skapa. Hér finnur þú handgerðar vörur sem eru unnar í litlu upplagi og oft er hvert eintak einstakt. Einnig er hægt að hafa samband ef óskað er eftir annarri útfærslu, lit eða persónulegri útfærslu.
Vonandi finnur þú hér eitthvað sem gleður ♡